Biblían, Rómverjabréfið, Kafli 10. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=11055&pid=47&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Rómverjabréfið

Biblían

Postulasagan Rómverjabréfið Fyrra Korintubréf

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16

1 Bræður, það er hjartans ósk mín og bæn til Guðs, að þeir megi hólpnir verða.

2 Það ber ég þeim, að þeir eru kappsfullir Guðs vegna, en ekki með réttum skilningi.

3 Með því þeir þekkja ekki réttlæti Guðs og leitast við að koma til vegar eigin réttlæti, hafa þeir ekki gefið sig undir réttlæti Guðs.

4 En Kristur er endalok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá, sem trúir.

5 Því að Móse ritar um réttlætið, sem lögmálið veitir: ,,Sá maður, sem breytir eftir lögmálinu, mun lifa fyrir það.``

6 En réttlætið af trúnni mælir þannig: ,,Seg þú ekki í hjarta þínu: Hver mun fara upp í himininn?`` _ það er: til að sækja Krist ofan, _

7 eða: ,,Hver mun stíga niður í undirdjúpið?`` _ það er: til að sækja Krist upp frá dauðum.

8 Hvað segir það svo? ,,Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu.`` Það er: Orð trúarinnar, sem vér prédikum.

9 Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn _ og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða.

10 Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.

11 Ritningin segir: ,,Hver sem trúir á hann, mun ekki til skammar verða.``

12 Ekki er munur á Gyðingi og grískum manni, því að hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla þá sem ákalla hann;

13 því að ,,hver sem ákallar nafn Drottins, mun hólpinn verða.``

14 En hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra, án þess að einhver prédiki?

15 Og hver getur prédikað, nema hann sé sendur? Svo er og ritað: ,,Hversu fagurt er fótatak þeirra, sem færa fagnaðarboðin góðu.``

16 En þeir hlýddu ekki allir fagnaðarerindinu. Jesaja segir: ,,Drottinn, hver trúði því, sem vér boðuðum?``

17 Svo kemur þá trúin af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists.

18 En ég spyr: Hafa þeir ekki heyrt? Jú, vissulega, ,,raust þeirra hefur borist út um alla jörðina og orð þeirra til endimarka heimsbyggðarinnar.``

19 Og ég spyr: Hvort skildi Ísrael það ekki? Fyrst segir Móse: ,,Vekja vil ég yður til afbrýði gegn þjóð, sem ekki er þjóð, egna vil ég yður til reiði gegn óviturri þjóð.``

20 Og Jesaja er svo djarfmáll að segja: ,,Ég hef látið þá finna mig, sem leituðu mín ekki. Ég er orðinn augljós þeim, sem spurðu ekki að mér.``En við Ísrael segir hann: ,,Allan daginn breiddi ég út hendur mínar móti óhlýðnum og þverbrotnum lýð.``

21 En við Ísrael segir hann: ,,Allan daginn breiddi ég út hendur mínar móti óhlýðnum og þverbrotnum lýð.``

<< ← Prev Top Next → >>