Biblían, Jóhannesarguðspjall, Kafli 6. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=11003&pid=45&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Jóhannesarguðspjall

Biblían

Lúkasarguðspjall Jóhannesarguðspjall Postulasagan

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

1 Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn.

2 Mikill fjöldi manna fylgdi honum, því þeir sáu þau tákn, er hann gjörði á sjúku fólki.

3 Þá fór Jesús upp á fjallið og settist þar niður með lærisveinum sínum.

4 Þetta var laust fyrir páska, hátíð Gyðinga.

5 Jesús leit upp og sá, að mikill mannfjöldi kom til hans. Hann segir þá við Filippus: ,,Hvar eigum vér að kaupa brauð, að þessir menn fái að eta?``

6 En þetta sagði hann til að reyna hann, því hann vissi sjálfur, hvað hann ætlaði að gjöra.

7 Filippus svaraði honum: ,,Brauð fyrir tvö hundruð denara nægðu þeim ekki, svo að hver fengi lítið eitt.``

8 Annar lærisveinn hans, Andrés, bróðir Símonar Péturs, segir þá við hann:

9 ,,Hér er piltur, sem er með fimm byggbrauð og tvo fiska, en hvað er það handa svo mörgum?``

10 Jesús sagði: ,,Látið fólkið setjast niður.`` Þarna var gras mikið. Menn settust nú niður, um fimm þúsund karlmenn að tölu.

11 Nú tók Jesús brauðin, gjörði þakkir og skipti þeim út til þeirra, sem þar sátu, og eins af fiskunum, svo mikið sem þeir vildu.

Jóhannesarguðspjall 6:11 - Jesus Feeds the 5000
Jesus Feeds the 5000
12 Þegar þeir voru mettir, segir hann við lærisveina sína: ,,Safnið saman leifunum, svo ekkert spillist.``

13 Þeir söfnuðu þeim saman og fylltu tólf körfur með leifum byggbrauðanna fimm, sem af gengu hjá þeim, er neytt höfðu.

14 Þegar menn sáu táknið, sem hann gjörði, sögðu þeir: ,,Þessi maður er sannarlega spámaðurinn, sem koma skal í heiminn.``

15 Jesús vissi nú, að þeir mundu koma og taka hann með valdi til að gjöra hann að konungi, og vék því aftur upp til fjallsins einn síns liðs.

16 Þegar kvöld var komið, fóru lærisveinar hans niður að vatninu,

17 stigu út í bát og lögðu af stað yfir um vatnið til Kapernaum. Myrkur var skollið á, og Jesús var ekki enn kominn til þeirra.

18 Vind gerði hvassan, og tók vatnið að æsast.

19 Þegar þeir höfðu róið hér um bil tuttugu og fimm eða þrjátíu skeiðrúm, sáu þeir Jesú gangandi á vatninu og nálgast bátinn. Þeir urðu hræddir,

20 en hann sagði við þá: ,,Það er ég, óttist eigi.``

21 Þeir vildu þá taka hann í bátinn, en í sömu svifum rann báturinn að landi, þar sem þeir ætluðu að lenda.

22 Daginn eftir sá fólkið, sem eftir var handan vatnsins, að þar hafði ekki verið nema einn bátur og að Jesús hafði ekki stigið í bátinn með lærisveinum sínum, heldur höfðu þeir farið burt einir saman.

23 Aðrir bátar komu frá Tíberías í nánd við staðinn, þar sem þeir höfðu etið brauðið, þegar Drottinn gjörði þakkir.

24 Nú sáu menn, að Jesús var ekki þarna fremur en lærisveinar hans. Þeir stigu því í bátana og komu til Kapernaum í leit að Jesú.

25 Þeir fundu hann hinum megin við vatnið og spurðu hann: ,,Rabbí, nær komstu hingað?``

26 Jesús svaraði þeim: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér leitið mín ekki af því, að þér sáuð tákn, heldur af því, að þér átuð af brauðunum og urðuð mettir.

27 Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur faðirinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt.``

28 Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvað eigum vér að gjöra, svo að vér vinnum verk Guðs?``

29 Jesús svaraði þeim: ,,Þetta er verk Guðs, að þér trúið á þann, sem hann sendi.``

30 Þeir spurðu hann þá: ,,Hvaða tákn gjörir þú, svo að vér sjáum og trúum þér? Hvað afrekar þú?

31 Feður vorir átu manna í eyðimörkinni, eins og ritað er: ,Brauð af himni gaf hann þeim að eta.```

32 Jesús sagði við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Móse gaf yður ekki brauðið af himni, heldur gefur faðir minn yður hið sanna brauð af himni.

33 Brauð Guðs er sá, sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.``

34 Þá sögðu þeir við hann: ,,Herra, gef oss ætíð þetta brauð.``

35 Jesús sagði þeim: ,,Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.

36 En ég hef sagt við yður: Þér hafið séð mig og trúið þó ekki.

37 Allt sem faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka.

38 Ég er stiginn niður af himni, ekki til að gjöra vilja minn, heldur vilja þess, er sendi mig.

39 En sá er vilji þess, sem sendi mig, að ég glati engu af öllu því, sem hann hefur gefið mér, heldur reisi það upp á efsta degi.

40 Því sá er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.``

41 Nú kom upp kurr meðal Gyðinga út af því, að hann sagði: ,,Ég er brauðið, sem niður steig af himni,``

42 og þeir sögðu: ,,Er þetta ekki hann Jesús, sonur Jósefs? Vér þekkjum bæði föður hans og móður. Hvernig getur hann sagt, að hann sé stiginn niður af himni?``

43 Jesús svaraði þeim: ,,Verið ekki með kurr yðar á meðal.

44 Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, dragi hann, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.

45 Hjá spámönnunum er skrifað: ,Þeir munu allir verða af Guði fræddir.` Hver sem hlýðir á föðurinn og lærir af honum, kemur til mín.

46 Ekki er það svo, að nokkur hafi séð föðurinn. Sá einn, sem er frá Guði, hefur séð föðurinn.

47 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir, hefur eilíft líf.

48 Ég er brauð lífsins.

49 Feður yðar átu manna í eyðimörkinni, en þeir dóu.

50 Þetta er brauðið, sem niður stígur af himni. Sá sem etur af því, deyr ekki.

51 Ég er hið lifandi brauð, sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði, mun lifa að eilífu. Og brauðið, sem ég mun gefa, er hold mitt, heiminum til lífs.``

52 Nú deildu Gyðingar sín á milli og sögðu: ,,Hvernig getur þessi maður gefið oss hold sitt að eta?``

53 Þá sagði Jesús við þá: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér etið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans, hafið þér ekki lífið í yður.

54 Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, hefur eilíft líf, og ég reisi hann upp á efsta degi.

55 Hold mitt er sönn fæða, og blóð mitt er sannur drykkur.

56 Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum.

57 Eins og hinn lifandi faðir sendi mig og ég lifi fyrir föðurinn, svo mun sá lifa fyrir mig, sem mig etur.

58 Þetta er það brauð, sem niður steig af himni. Það er ekki eins og brauðið, sem feðurnir átu og dóu. Sá sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu.``

59 Þetta sagði hann, þegar hann var að kenna í samkundunni í Kapernaum.

60 Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: ,,Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?``

61 Jesús vissi með sjálfum sér, að kurr var með lærisveinum hans út af þessu, og sagði við þá: ,,Hneykslar þetta yður?

62 En ef þér sæjuð Mannssoninn stíga upp þangað, sem hann áður var?

63 Það er andinn, sem lífgar, holdið megnar ekkert. Orðin, sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf.

64 En meðal yðar eru nokkrir, sem ekki trúa.`` Jesús vissi frá upphafi, hverjir þeir voru, sem trúðu ekki, og hver sá var, sem mundi svíkja hann.

65 Og hann bætti við: ,,Vegna þess sagði ég við yður: Enginn getur komið til mín, nema faðirinn veiti honum það.``

66 Upp úr þessu hurfu margir af lærisveinum hans frá og voru ekki framar með honum.

67 Þá sagði Jesús við þá tólf: ,,Ætlið þér að fara líka?``

68 Símon Pétur svaraði honum: ,,Herra, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs,

69 og vér trúum og vitum, að þú ert hinn heilagi Guðs.``

70 Jesús svaraði þeim: ,,Hef ég eigi sjálfur útvalið yður tólf? Þó er einn yðar djöfull.``En hann átti við Júdas Símonarson Ískaríots, sem varð til að svíkja hann, einn þeirra tólf.

71 En hann átti við Júdas Símonarson Ískaríots, sem varð til að svíkja hann, einn þeirra tólf.

<< ← Prev Top Next → >>