Biblían, Matteusarguðspjall, Kafli 4. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10933&pid=42&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Matteusarguðspjall

Biblían

Matteusarguðspjall Markúsarguðspjall

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28

1 Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina, að hans yrði freistað af djöflinum.

2 Þar fastaði hann fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður.

3 Þá kom freistarinn og sagði við hann: ,,Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú, að steinar þessir verði að brauðum.``

4 Jesús svaraði: ,,Ritað er: ,Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði, heldur á hverju því orði, sem fram gengur af Guðs munni.```

5 Þá tekur djöfullinn hann með sér í borgina helgu, setur hann á brún musterisins

6 og segir við hann: ,,Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér ofan, því að ritað er: Hann mun fela þig englum sínum, og þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini.``

7 Jesús svaraði honum: ,,Aftur er ritað: ,Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.```

8 Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall, sýnir honum öll ríki heims og dýrð þeirra

9 og segir: ,,Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú fellur fram og tilbiður mig.``

10 En Jesús sagði við hann: ,,Vík brott, Satan! Ritað er: ,Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.```

11 Þá fór djöfullinn frá Jesú. Og englar komu og þjónuðu honum.

Matteusarguðspjall 4:11 - Satan Tempts Jesus
Satan Tempts Jesus
12 Þegar hann heyrði, að Jóhannes hefði verið tekinn höndum, hélt hann til Galíleu.

13 Hann fór frá Nasaret og settist að í Kapernaum við vatnið í byggðum Sebúlons og Naftalí.

14 Þannig rættist það, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns:

15 Sebúlonsland og Naftalíland við vatnið, landið handan Jórdanar, Galílea heiðingjanna.

16 Sú þjóð, sem í myrkri sat, sá mikið ljós. Þeim er sátu í skuggalandi dauðans, er ljós upp runnið.

17 Upp frá þessu tekur Jesús að prédika og segja: ,,Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd.``

18 Hann gekk með Galíleuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið, en þeir voru fiskimenn.

19 Hann sagði við þá: ,,Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.``

20 Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum.

21 Hann gekk áfram þaðan og sá tvo aðra bræður, Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans. Þeir voru í bátnum með Sebedeusi, föður sínum, að búa net sín. Jesús kallaði þá,

22 og þeir yfirgáfu jafnskjótt bátinn og föður sinn og fylgdu honum.

23 Hann fór nú um alla Galíleu, kenndi í samkundum þeirra, prédikaði fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi meðal lýðsins.

24 Orðstír hans barst um allt Sýrland, og menn færðu til hans alla, sem þjáðust af ýmsum sjúkdómum og kvölum, voru haldnir illum öndum, tunglsjúka menn og lama. Og hann læknaði þá.Mikill mannfjöldi fylgdi honum úr Galíleu, Dekapólis, Jerúsalem, Júdeu og landinu handan Jórdanar.

25 Mikill mannfjöldi fylgdi honum úr Galíleu, Dekapólis, Jerúsalem, Júdeu og landinu handan Jórdanar.

<< ← Prev Top Next → >>