Biblían, Orðskviðirnir, Kafli 26. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10654&pid=22&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Orðskviðirnir

Biblían

Sálmarnir Orðskviðirnir Prédikarinn

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

1 Eins og snjór um sumar og eins og regn um uppskeru, eins illa á sæmd við heimskan mann.

2 Eins og spörfugl flögrar, eins og svala flýgur, eins er um óverðskuldaða formæling _ hún verður eigi að áhrínsorðum.

3 Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum _ en vöndurinn baki heimskingjanna.

4 Svara þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að þú verðir ekki honum jafn.

5 Svara þú heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að hann haldi ekki, að hann sé vitur.

6 Sá höggur af sér fæturna og fær að súpa á ranglæti, sem sendir orð með heimskingja.

7 Eins og lærleggir hins lama hanga máttlausir, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.

8 Sá sem sýnir heimskum manni sæmd, honum fer eins og þeim, er bindur stein í slöngvu.

9 Eins og þyrnir, sem stingst upp í höndina á drukknum manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.

10 Eins og skytta, sem hæfir allt, svo er sá sem leigir heimskingja, og sá er leigir vegfarendur.

11 Eins og hundur, sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi, sem endurtekur fíflsku sína.

12 Sjáir þú mann, sem þykist vitur, þá er meiri von um heimskingja en hann.

13 Letinginn segir: ,,Óargadýr er á veginum, ljón á götunum.``

14 Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.

15 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en honum verður þungt um að bera hana aftur upp að munninum.

16 Latur maður þykist vitrari en sjö, sem svara hyggilega.

17 Sá, sem kemst í æsing út af deilu, sem honum kemur ekki við, hann er eins og sá, sem tekur um eyrun á hundi, er hleypur fram hjá.

18 Eins og óður maður, sem kastar tundurörvum, banvænum skeytum,

19 eins er sá maður, er svikið hefir náunga sinn og segir síðan: ,,Ég er bara að gjöra að gamni mínu.``

20 Þegar eldsneytið þrýtur, slokknar eldurinn, og þegar enginn er rógberinn, stöðvast deilurnar.

21 Eins og kol þarf til glóða og við til elds, svo þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.

22 Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.

23 Eldheitir kossar og illt hjarta, það er sem sorasilfur utan af leirbroti.

24 Með vörum sínum gjörir hatursmaðurinn sér upp vinalæti, en í hjarta sínu hyggur hann á svik.

25 Þegar hann mælir fagurt, þá trú þú honum ekki, því að sjö andstyggðir eru í hjarta hans.

26 Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu.

27 Sá sem grefur gröf, fellur í hana, og steinninn fellur aftur í fang þeim, er veltir honum.Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið, og smjaðrandi munnur veldur glötun.

28 Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið, og smjaðrandi munnur veldur glötun.

<< ← Prev Top Next → >>