Biblían, Jósúabók, Kafli 22. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10209&pid=8&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jósúabók

Biblían

Fimmta Mósebók Jósúabók Dómarabókin

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24

1 Þá kallaði Jósúa Rúbeníta, Gaðíta og hálfa kynkvísl Manasse fyrir sig

2 og sagði við þá: ,,Þér hafið haldið allt það, sem Móse, þjónn Drottins, bauð yður. Þér hafið og hlýtt röddu minni í öllu því, er ég hefi fyrir yður lagt.

3 Þennan langa tíma allt fram á þennan dag hafið þér fylgi veitt bræðrum yðar og varðveitt hlýðni við boðorð Drottins, Guðs yðar.

4 En nú hefir Drottinn, Guð yðar, veitt bræðrum yðar hvíld, eins og hann hafði heitið þeim. Snúið því nú á leið og farið til tjalda yðar, til eignarlands yðar, þess er Móse, þjónn Drottins, gaf yður hinumegin Jórdanar.

5 Gætið þess einungis, að þér haldið vel boðorð það og lögmál, er Móse, þjónn Drottins, fyrir yður lagði: að þér elskið Drottin Guð yðar, gangið ávallt á vegum hans, geymið boð hans, haldið yður fast við hann og þjónið honum af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar.``

6 Síðan blessaði Jósúa þá og lét þá burt fara, og þeir héldu til tjalda sinna.

7 Hálfri ættkvísl Manasse hafði Móse gefið land í Basan, en hinum helmingnum hafði Jósúa gefið land með bræðrum þeirra vestanmegin Jórdanar. Og þegar Jósúa lét þá burt fara til tjalda sinna, blessaði hann þá enn fremur

8 og sagði við þá: ,,Hverfið nú aftur til tjalda yðar með mikil auðæfi, mjög mikinn fénað, með silfur og gull, eir og járn, og með mjög mikið af klæðnaði; miðlið bræðrum yðar nokkru af því, er þér hafið tekið að herfangi af óvinum yðar.``

9 Þá sneru þeir Rúbens synir, Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse aftur og skildu við Ísraelsmenn í Síló, sem er í Kanaanlandi og héldu til Gíleaðlands, eignarlands síns, þar sem þeir höfðu fest byggð eftir boði Drottins, er Móse flutti.

10 Er Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse komu til héraðsins við Jórdan, sem er í Kanaanlandi, reistu þeir þar altari við Jórdan, og var það mikið til að sjá.

11 Ísraelsmenn fengu þá svolátandi fregn: ,,Sjá, Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse hafa reist altari við landamæri Kanaanlands, í héruðunum við Jórdan, þeim megin er Ísraelsmenn eiga land.``

12 Og er Ísraelsmenn spurðu það, þá safnaðist allur lýður Ísraelsmanna saman í Síló til þess að fara í móti þeim til hernaðar.

13 Þá sendu Ísraelsmenn Pínehas, son Eleasars prests, til Rúbens sona og Gaðs sona og hálfrar ættkvíslar Manasse til Gíleaðlands,

14 og með honum tíu höfuðsmenn, einn höfuðsmann af ætt hverri af öllum kynkvíslum Ísraels. Var hver þeirra höfðingi yfir ættum feðra sinna meðal þúsunda Ísraels.

15 Og er þeir komu til Rúbens sona og Gaðs sona og hálfrar ættkvíslar Manasse til Gíleaðlands, þá mæltu þeir við þá á þessa leið:

16 ,,Svo segir allur söfnuður Drottins: Hvílík er sú ótrúmennska, sem þér hafið sýnt gegn Guði Ísraels, að þér í dag hafið snúið yður burt frá Drottni, er þér hafið reist yður altari, að þér í dag hafið gjört uppreisn gegn Drottni!

17 Er oss ekki nógur glæpur sá, að vér tilbáðum Peór, og höfum vér ekki hreinsað oss af þeim glæp fram á þennan dag, enda kom plágan yfir söfnuð Drottins vegna hans. Og þér snúið yður í dag burt frá Drottni!

18 Mun þá svo fara: Þér gjörið í dag uppreisn gegn Drottni, og á morgun mun hann úthella reiði sinni yfir allan söfnuð Ísraels.

19 Ef land það er óhreint, er þér hafið hlotið til eignar, þá komið yfir í eignarland Drottins, þar sem búð Drottins hefir aðsetur, og setjist að meðal vor. En gjörið ekki uppreisn gegn Drottni og gjörið ekki uppreisn gegn oss með því að reisa yður altari annað en altari Drottins Guðs vors.

20 Kom ekki reiði Guðs yfir allan söfnuð Ísraels, þá er Akan Seraksson fór sviksamlega með hið bannfærða? Hann dó ekki einn fyrir glæp sinn.``

21 Þá svöruðu þeir Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse og sögðu við höfðingja Ísraels þúsunda:

22 ,,Drottinn, hinn máttki Guð, Drottinn, hinn máttki Guð, hann veit það, og Ísrael skal vita það: Ef það er gjört í uppreisnar eða sviksemi skyni við Drottin, þá hjálpi hann oss eigi í dag!

23 Vér höfum ekki reist oss altari til þess að snúa oss burt frá Drottni. Ef það er gjört til þess að færa þar brennifórn og matfórn, eða til þess að fórna þar heillafórnum, þá hefni Drottinn þess!

24 Heldur höfum vér gjört það af hræðslu við, hvernig fara kynni, með því að vér hugsuðum: Síðar kynnu synir yðar að segja við sonu vora: ,Hvað kemur Drottinn, Ísraels Guð, yður við?

25 Drottinn hefir sett Jórdan sem landamerki milli vor og yðar Rúbens sona og Gaðs sona. Þér eigið enga hlutdeild í Drottni!` Kynnu þá synir yðar að koma sonum vorum til þess að hætta að óttast Drottin.

26 Fyrir því sögðum vér: Vér skulum reisa oss altari, ekki til brennifórna og ekki til sláturfórna,

27 heldur skal það vera til vitnis fyrir oss og fyrir yður, og fyrir niðja vora eftir oss, að vér viljum gegna þjónustu Drottins fyrir augliti hans með brennifórnum vorum, sláturfórnum og heillafórnum, og að synir yðar geti ekki á síðan sagt við sonu vora: ,Þér eigið enga hlutdeild í Drottni!`

28 Og vér hugsuðum: Ef þeir síðar mæla svo til vor eða niðja vorra, þá munum vér segja: Lítið á lögunina á því Drottins altari, sem feður vorir hafa gjört, ekki til brennifórna eða sláturfórna, heldur átti það að vera til vitnis fyrir oss og yður.

29 Því fer fjarri, að vér vildum gjöra uppreisn gegn Drottni og snúa oss burt frá Drottni í dag með því að reisa altari til brennifórna, matfórna og sláturfórna, annað en altari Drottins Guðs vors, það er stendur fyrir framan búð hans.``

30 Þegar Pínehas prestur og höfuðsmenn safnaðarins, höfðingjar Ísraels þúsunda, sem með honum voru, heyrðu andsvör þau, er Rúbens synir og Gaðs synir og Manasse synir veittu, þá létu þeir sér það vel líka.

31 Og Pínehas, sonur Eleasars prests, sagði við Rúbens sonu og Gaðs sonu og Manasse sonu: ,,Í dag höfum vér sannreynt, að Drottinn er á meðal vor, þar sem þér hafið ekki sýnt ótrúmennsku gegn Drottni í þessu. Nú hafið þér frelsað Ísraelsmenn undan hendi Drottins.``

32 Síðan sneri Pínehas, sonur Eleasars prests, og höfuðsmennirnir heim aftur frá Rúbens sonum og Gaðs sonum í Gíleaðlandi til Kanaanlands til Ísraelsmanna og færðu þeim þessi svör.

33 Létu Ísraelsmenn sér það vel líka, og þeir lofuðu Guð og hugðu ekki framar á að fara herför á móti þeim til þess að eyða land það, er Rúbens synir og Gaðs synir bjuggu í.Og Rúbens synir og Gaðs synir nefndu altarið Vitni, því að það er vitni þess milli vor, að Drottinn er hinn sanni Guð.

34 Og Rúbens synir og Gaðs synir nefndu altarið Vitni, því að það er vitni þess milli vor, að Drottinn er hinn sanni Guð.

<< ← Prev Top Next → >>