Biblían, Jósúabók, Kafli 17. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10204&pid=8&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jósúabók

Biblían

Fimmta Mósebók Jósúabók Dómarabókin

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24

1 Kynkvísl Manasse fékk sinn hlut, því að hann var frumgetningur Jósefs. Makír, frumgetningur Manasse, faðir Gíleaðs, fékk Gíleað og Basan, því að hann var bardagamaður.

2 Og hinir synir Manasse fengu sinn hluta eftir ættum þeirra: synir Abíesers, synir Heleks, synir Asríels, synir Sekems, synir Hefers og synir Semída. Þessir voru synir Manasse Jósefssonar í karllegginn, eftir ættum þeirra.

3 En Selofhað Hefersson, Gíleaðssonar, Makírssonar, Manassesonar, átti enga sonu, heldur dætur einar, og hétu þær Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirsa.

4 Þær gengu fyrir Eleasar prest, Jósúa Núnsson og höfuðsmennina og sögðu: ,,Drottinn bauð Móse að gefa oss óðal meðal bræðra vorra.`` Gaf hann þeim þá eftir boði Drottins óðal meðal bræðra föður þeirra.

5 Komu þá tíu hlutir á Manasse, auk Gíleaðlands og Basans, sem liggja hinumegin Jórdanar,

6 með því að dætur Manasse fengu óðal meðal sona hans, en Gíleaðland fengu hinir synir Manasse.

7 Landamerki Manasse lágu frá Asser til Mikmetat, sem liggur fyrir austan Síkem; þaðan lágu landamærin til hægri, til þeirra sem bjuggu í En-Tappúa.

8 Tappúasveit fékk Manasse, en Tappúaborg, sem lá við takmörk Manasse, fengu Efraíms synir.

9 Þá lágu landamerkin niður að Kana-læk, fyrir sunnan lækinn. Þessar borgir heyra Efraím mitt á meðal borga Manasse. Þaðan lágu landamerki Manasse norðan með læknum og alla leið til sjávar.

10 Það sem var að sunnanverðu, átti Efraím, en það sem var að norðanverðu, átti Manasse, og hafið réð takmörkum hans. Að norðanverðu lágu lönd þeirra að Asser og að austanverðu að Íssakar.

11 En í Íssakar og Asser fékk Manasse: Bet Sean og smáborgirnar, er að liggja, Jibleam og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Dór og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Endór og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Taanak og smáborgirnar, er að liggja, og íbúana í Megiddó og smáborgirnar, er að liggja, þ. e. hæðirnar þrjár.

12 En ekki gátu Manasse synir stökkt íbúum þessara borga burt, og þannig fengu Kanaanítar haldið bústað í landi þessu.

13 En þegar Ísraelsmenn efldust, gjörðu þeir Kanaaníta sér vinnuskylda, en ráku þá ekki algjörlega burt.

14 Þá báru Jósefs synir sig upp við Jósúa og sögðu: ,,Hví hefir þú ekki gefið mér nema eitt hlutskipti og einn hlut að óðali, og er ég þó fjölmennur, þar sem Drottinn hefir blessað mig allt til þessa?``

15 Jósúa sagði við þá: ,,Ef þú ert orðinn svo fjölmennur, þá far þú upp í skóginn og ryð þér þar til bólstaða í landi Peresíta og Refaíta, ef of þröngt er orðið um þig á Efraímfjöllum.``

16 Þá sögðu Jósefs synir: ,,Fjalllendið nægir oss eigi, því að allir Kanaanítar, þeir er á sléttlendinu búa, hafa járnvagna, bæði þeir sem búa í Bet Sean og þorpunum, er að liggja, og þeir sem búa á Jesreelsléttunni.``

17 Þá sagði Jósúa við hús Jósefs, við Efraím og Manasse: ,,Þú ert orðinn fjölmennur, og styrkur þinn er mikill. Þú skalt fá meira en einn erfðahluta,því að fjalllendið skal vera þitt. Ef það er skógi vaxið, þá verður þú að ryðja hann, þá munt þú og eignast fjalladrögin. Því að þú verður að reka Kanaanítana burt, fyrst þeir hafa járnvagna og fyrst þeir eru sterkir.``

18 því að fjalllendið skal vera þitt. Ef það er skógi vaxið, þá verður þú að ryðja hann, þá munt þú og eignast fjalladrögin. Því að þú verður að reka Kanaanítana burt, fyrst þeir hafa járnvagna og fyrst þeir eru sterkir.``

<< ← Prev Top Next → >>