Biblían, Jósúabók, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10189&pid=8&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jósúabók

Biblían

Fimmta Mósebók Jósúabók Dómarabókin

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24

1 Jósúa Núnsson sendi tvo njósnarmenn leynilega frá Sittím og sagði: ,,Farið og skoðið landið og Jeríkó!`` Þeir fóru og komu í hús portkonu einnar, er Rahab hét, og tóku sér þar gistingu.

2 Konunginum í Jeríkó var sagt: ,,Sjá, hingað komu menn nokkrir í kveld af Ísraelsmönnum til þess að kanna landið.``

3 Sendi þá konungurinn í Jeríkó til Rahab og lét segja henni: ,,Sel fram mennina, sem til þín eru komnir, þá er komnir eru í hús þitt, því að þeir eru komnir til þess að kanna allt landið.``

4 En konan tók mennina báða og leyndi þeim. Og hún sagði: ,,Satt er það, menn komu til mín, en eigi vissi ég hvaðan þeir voru,

5 og er loka skyldi borgarhliðinu í rökkrinu, fóru mennirnir burt. Eigi veit ég hvert þeir hafa farið. Veitið þeim eftirför sem skjótast, þá munuð þér ná þeim.``

6 En hún hafði leitt þá upp á þakið og falið þá undir hörjurtarleggjum, sem breiddir voru á þakið.

7 Menn konungs veittu þeim eftirför veginn til Jórdanar, að vöðunum. Og borgarhliðinu var lokað, þá er leitarmennirnir voru út farnir.

8 Áður en njósnarmennirnir gengu til hvílu, gekk hún til þeirra upp á þakið

9 og sagði við þá: ,,Ég veit, að Drottinn hefir gefið yður land þetta og að ótti við yður er yfir oss kominn og að allir landsbúar hræðast yður.

10 Því að frétt höfum vér, að Drottinn þurrkaði fyrir yður vatnið í Sefhafi, þá er þér fóruð af Egyptalandi, og hvað þér hafið gjört við Amorítakonungana tvo, þá Síhon og Óg, hinumegin Jórdanar, að þér eydduð þeim með öllu.

11 Síðan vér heyrðum þetta, er æðra komin í brjóst vor, og enginn hugur er í nokkrum manni, þegar yður skal mæta, því að Drottinn, Guð yðar, er Guð á himnum uppi og á jörðu niðri.

12 Sverjið mér nú við Drottin, að fyrst ég sýndi ykkur miskunn, þá skuluð þið og miskunn sýna húsi föður míns og gefið mér um það óbrigðult merki,

13 að þið viljið láta föður minn og móður, bræður mína og systur halda lífi, og alla, sem þeim heyra, og frelsa oss frá dauða!``

14 Mennirnir svöruðu henni: ,,Við setjum líf okkar í veð fyrir yður, ef þú lætur ekki vitnast erindi okkar. Og þegar Drottinn gefur oss land þetta, þá skulum vér auðsýna þér miskunn og trúfesti.``

15 Þá lét hún þá síga í festi út um gluggann, því að hús hennar stóð við borgarmúrinn og sjálf bjó hún úti við múrinn.

Jósúabók 2:15 - Escape from Rahab\'s House
Escape from Rahab\'s House
16 Og hún sagði við þá: ,,Haldið til fjalla, svo að leitarmennirnir finni ykkur ekki, og leynist þar þrjá daga, uns leitarmennirnir eru aftur horfnir. Eftir það getið þið farið leiðar ykkar.``

17 Mennirnir sögðu við hana: ,,Lausir viljum við vera eiðs þess, er þú lést okkur sverja þér,

18 nema svo verði, að þegar vér komum inn í landið, þá bindir þú í gluggann, þann er þú lést okkur síga út um, festina þessa rauðu, og kallir saman í hús þitt föður þinn og móður og bræður þína og allt heimilisfólk föður þíns,

19 en gangi nokkur út fyrir húsdyr þínar, þá er hann sjálfur valdur að dauða sínum, en við sýknir, en verði hönd lögð á nokkurn þann, sem í þínu húsi er, þá skal dauði hans verða gefinn okkur að sök.

20 Og ef þú lætur vitnast erindi okkar, þá erum við lausir þess eiðs, er þú lést okkur sverja þér.``

21 Hún sagði: ,,Svo skal vera sem þið segið!`` Lét hún þá síðan fara, og þeir gengu burt, en hún batt rauðu festina í gluggann.

22 Gengu þeir þá á burt og héldu til fjalla og dvöldust þar þrjá daga, uns leitarmennirnir voru aftur heim horfnir. Höfðu leitarmennirnir leitað þeirra alla leiðina, en ekki fundið.

23 Hurfu þá þessir tveir menn aftur og gengu niður af fjöllunum og fóru yfir um og komu til Jósúa Núnssonar og sögðu honum frá öllu, er fyrir þá hafði komið.Og þeir sögðu við Jósúa: ,,Drottinn hefir gefið allt landið oss í hendur, enda hræðast allir landsbúar oss.``

24 Og þeir sögðu við Jósúa: ,,Drottinn hefir gefið allt landið oss í hendur, enda hræðast allir landsbúar oss.``

<< ← Prev Top Next → >>