Biblían, Fyrsta Mósebók, Kafli 33. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10033&pid=3&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Fyrsta Mósebók

Biblían

Fyrsta Mósebók Önnur Mósebók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50

1 Jakob hóf upp augu sín og sá Esaú koma og með honum fjögur hundruð manns. Skipti hann þá börnunum niður á Leu og Rakel og báðar ambáttirnar.

2 Og hann lét ambáttirnar og þeirra börn vera fremst, þá Leu og hennar börn, og Rakel og Jósef aftast.

3 En sjálfur gekk hann á undan þeim og laut sjö sinnum til jarðar, uns hann kom fast að bróður sínum.

4 Þá hljóp Esaú á móti honum og faðmaði hann, lagði hendur um háls honum og kyssti hann, og þeir grétu.

Fyrsta Mósebók 33:4 - Esau Embraces Jacob
Esau Embraces Jacob
5 Og Esaú leit upp og sá konurnar og börnin og mælti: ,,Hvernig stendur á þessu fólki, sem með þér er?`` Og hann svaraði: ,,Það eru börnin, sem Guð hefir af náð sinni gefið þjóni þínum.``

6 Þá gengu fram ambáttirnar og börn þeirra og hneigðu sig.

7 Þá gekk og Lea fram og börn hennar og hneigðu sig, og síðan gengu Jósef og Rakel fram og hneigðu sig.

8 Esaú mælti: ,,Hvað skal allur þessi hópur, sem ég mætti?`` Jakob svaraði: ,,Að ég megi finna náð í augum herra míns.``

9 Þá mælti Esaú: ,,Ég á nóg. Eig þú þitt, bróðir minn!``

10 En Jakob sagði: ,,Eigi svo. Hafi ég fundið náð í augum þínum, þá þigg þú gjöfina af mér, því að þegar ég sá auglit þitt, var sem ég sæi Guðs auglit, og þú tókst náðarsamlega á móti mér.

11 Ég bið þig, að þú þiggir gjöf mína, sem þér var færð, því að Guð hefir verið mér náðugur og ég hefi allsnægtir.`` Og hann lagði að honum, svo að hann þá gjöfina.

12 Þá mælti Esaú: ,,Tökum okkur nú upp og höldum áfram, og skal ég fara á undan þér.``

13 En hann svaraði honum: ,,Þú sér, herra minn, að börnin eru þróttlítil og að í ferðinni eru lambær og kýr með kálfum, og ræki ég þær of hart einn dag, þá mundi öll hjörðin drepast.

14 Fari herra minn á undan þjóni sínum, en ég mun halda á eftir í hægðum mínum, eins og fénaðurinn getur farið, sem ég rek, og eins og börnin geta farið, uns ég kem til herra míns í Seír.``

15 Þá mælti Esaú: ,,Þá vil ég þó láta eftir hjá þér nokkra af þeim mönnum, sem með mér eru.`` Hann svaraði: ,,Hver þörf er á því? Lát mig aðeins finna náð fyrir augum herra míns.``

16 Síðan fór Esaú þann sama dag leiðar sinnar heim aftur til Seír.

17 Og Jakob hélt áfram til Súkkót og byggði sér hús, og handa fénaði sínum gjörði hann laufskála. Fyrir því heitir staðurinn Súkkót.

18 Jakob kom heill á hófi til Síkemborgar, sem er í Kanaanlandi, er hann kom frá Mesópótamíu, og hann sló tjöldum fyrir utan borgina.

19 Hann keypti landspilduna, sem hann hafði tjaldað á, af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað silfurpeninga.Og hann reisti þar altari og kallaði það El-elóhe-Ísrael.

20 Og hann reisti þar altari og kallaði það El-elóhe-Ísrael.

<< ← Prev Top Next → >>