Biblían, Rómverjabréfið, Kafli 9. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=11054&pid=47&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Rómverjabréfið

Biblían

Postulasagan Rómverjabréfið Fyrra Korintubréf

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16

1 Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki. Samviska mín vitnar það með mér, upplýst af heilögum anda,

2 að ég hef hryggð mikla og sífellda kvöl í hjarta mínu.

3 Ég gæti óskað, að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi, ef það yrði til heilla fyrir bræður mína og ættmenn,

4 Ísraelsmenn. Þeir fengu sonarréttinn, dýrðina, sáttmálana, löggjöfina, helgihaldið og fyrirheitin.

5 Þeim tilheyra og feðurnir, og af þeim er Kristur kominn sem maður, hann sem er yfir öllu, Guð, blessaður um aldir. Amen.

6 Það er ekki svo sem Guðs orð hafi brugðist. Því að ekki eru allir þeir Ísraelsmenn, sem af Ísrael eru komnir.

7 Ekki eru heldur allir börn Abrahams, þótt þeir séu niðjar hans, heldur: ,,Afkomendur Ísaks munu taldir verða niðjar þínir.``

8 Það merkir: Ekki eru líkamlegir afkomendur hans Guðs börn, heldur teljast fyrirheitsbörnin sannir niðjar.

9 Því að þetta orð er fyrirheit: ,,Í þetta mund mun ég aftur koma, og þá skal Sara hafa son alið.``

10 Og ekki nóg með það. Því var líka svo farið með Rebekku. Hún var þunguð að tveim sveinum af eins manns völdum, Ísaks föður vors.

11 Nú, til þess að það stæði stöðugt, að ákvörðun Guðs um útvalningu væri óháð verkunum og öll komin undir vilja þess, er kallar,

12 þá var henni sagt, áður en sveinarnir voru fæddir og áður en þeir höfðu aðhafst gott eða illt: ,,Hinn eldri skal þjóna hinum yngri.``

13 Eins og ritað er: ,,Jakob elskaði ég, en Esaú hataði ég.``

14 Hvað eigum vér þá að segja? Er Guð óréttvís? Fjarri fer því.

15 Því hann segir við Móse: ,,Ég mun miskunna þeim, sem ég vil miskunna, og líkna þeim, sem ég vil líkna.``

16 Það er því ekki komið undir vilja mannsins né áreynslu, heldur Guði, sem miskunnar.

17 Því er í Ritningunni sagt við Faraó: ,,Einmitt til þess hóf ég þig, að ég fengi sýnt mátt minn á þér og nafn mitt yrði boðað um alla jörðina.``

18 Svo miskunnar hann þá þeim, sem hann vill, en forherðir þann, sem hann vill.

19 Þú munt nú vilja segja við mig: ,,Hvað er hann þá að ásaka oss framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?``

20 Hver ert þú, maður, að þú skulir deila á Guð? Hvort mundi smíðisgripurinn segja við smiðinn: ,,Hví gjörðir þú mig svona?``

21 Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu, svo að hann megi gjöra úr sama deiginu ker til sæmdar og annað til vansæmdar?

22 En ef nú Guð, sem vildi sýna reiði sína og auglýsa mátt sinn, hefur með miklu langlyndi umborið ker reiðinnar, sem búin eru til glötunar,

23 og ef hann hefur gjört það til þess að auglýsa ríkdóm dýrðar sinnar á kerum miskunnarinnar, sem hann hafði fyrirfram búið til dýrðar?

24 Slík ker erum vér, sem hann hefur kallað, ekki aðeins úr flokki Gyðinga, heldur og úr flokki heiðingja.

25 Eins og hann líka segir hjá Hósea: Lýð, sem ekki var minn, mun ég kalla minn, og þá elskaða, sem ekki var elskuð,

26 og á þeim stað, þar sem við þá var sagt: þér eruð ekki minn lýður, þar munu þeir verða kallaðir synir Guðs lifanda.

27 En Jesaja hrópar yfir Ísrael: ,,Þótt tala Ísraels sona væri eins og sandur sjávarins, þá skulu leifar einar frelsaðar verða.

28 Drottinn mun gjöra upp reikning sinn á jörðunni, binda enda á hann og ljúka við hann í skyndi,``

29 og eins hefur Jesaja sagt: ,,Ef Drottinn hersveitanna hefði ekki látið oss eftir niðja, værum vér orðnir eins og Sódóma, vér værum líkir Gómorru.``

30 Hvað eigum vér þá að segja? Heiðingjarnir, sem ekki sóttust eftir réttlæti, hafa öðlast réttlæti, _ réttlæti, sem er af trú.

31 En Ísrael, sem vildi halda lögmál er veitt gæti réttlæti, náði því ekki.

32 Hvers vegna? Af því að þeir ætluðu sér að réttlætast með verkum, ekki af trú. Þeir hnutu um ásteytingarsteininn,eins og ritað er: Sjá ég set í Síon ásteytingarstein og hrösunarhellu. Sérhver, sem á hann trúir, mun ekki verða til skammar.

33 eins og ritað er: Sjá ég set í Síon ásteytingarstein og hrösunarhellu. Sérhver, sem á hann trúir, mun ekki verða til skammar.

<< ← Prev Top Next → >>