Biblían, Jóhannesarguðspjall, Kafli 11. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=11008&pid=45&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Jóhannesarguðspjall

Biblían

Lúkasarguðspjall Jóhannesarguðspjall Postulasagan

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

1 Maður sá var sjúkur, er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar.

2 En María var sú er smurði Drottin smyrslum og þerraði fætur hans með hári sínu. Bróðir hennar, Lasarus, var sjúkur.

3 Nú gjörðu systurnar Jesú orðsending: ,,Herra, sá sem þú elskar, er sjúkur.``

4 Þegar hann heyrði það, mælti hann: ,,Þessi sótt er ekki banvæn, heldur Guði til dýrðar, að Guðs sonur vegsamist hennar vegna.``

5 Jesús elskaði þau Mörtu og systur hennar og Lasarus.

6 Þegar hann frétti, að hann væri veikur, var hann samt um kyrrt á sama stað í tvo daga.

7 Að þeim liðnum sagði hann við lærisveina sína: ,,Förum aftur til Júdeu.``

8 Lærisveinarnir sögðu við hann: ,,Rabbí, nýlega voru Gyðingar að því komnir að grýta þig, og þú ætlar þangað aftur?``

9 Jesús svaraði: ,,Eru ekki stundir dagsins tólf? Sá sem gengur um að degi, hrasar ekki, því hann sér ljós þessa heims.

10 En sá sem gengur um að nóttu, hrasar, því hann hefur ekki ljósið í sér.``

11 Þetta mælti hann, og sagði síðan við þá: ,,Lasarus, vinur vor, er sofnaður. En nú fer ég að vekja hann.``

12 Þá sögðu lærisveinar hans: ,,Herra, ef hann er sofnaður, batnar honum.``

13 En Jesús talaði um dauða hans. Þeir héldu hins vegar, að hann ætti við venjulegan svefn.

14 Þá sagði Jesús þeim berum orðum: ,,Lasarus er dáinn,

15 og yðar vegna fagna ég því, að ég var þar ekki, til þess að þér skuluð trúa. En förum nú til hans.``

16 Tómas, sem nefndist tvíburi, sagði þá við hina lærisveinana: ,,Vér skulum fara líka til að deyja með honum.``

17 Þegar Jesús kom, varð hann þess vís, að Lasarus hafði verið fjóra daga í gröfinni.

18 Betanía var nálægt Jerúsalem, hér um bil fimmtán skeiðrúm þaðan.

19 Margir Gyðingar voru komnir til Mörtu og Maríu að hugga þær eftir bróðurmissinn.

20 Þegar Marta frétti, að Jesús væri að koma, fór hún á móti honum, en María sat heima.

21 Marta sagði við Jesú: ,,Herra, ef þú hefðir verið hér, væri bróðir minn ekki dáinn.

22 En einnig nú veit ég, að Guð mun gefa þér hvað sem þú biður hann um.``

23 Jesús segir við hana: ,,Bróðir þinn mun upp rísa.``

24 Marta segir: ,,Ég veit, að hann rís upp í upprisunni á efsta degi.``

25 Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.

26 Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?``

27 Hún segir við hann: ,,Já, herra. Ég trúi, að þú sért Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn.``

28 Að svo mæltu fór hún, kallaði á Maríu systur sína og sagði í hljóði: ,,Meistarinn er hér og vill finna þig.``

29 Þegar María heyrði þetta, reis hún skjótt á fætur og fór til hans.

30 En Jesús var ekki enn kominn til þorpsins, heldur var hann enn á þeim stað, þar sem Marta hafði mætt honum.

31 Gyðingarnir, sem voru heima hjá Maríu að hugga hana, sáu, að hún stóð upp í skyndi og gekk út, og fóru þeir á eftir henni. Þeir hugðu, að hún hefði farið til grafarinnar að gráta þar.

32 María kom þangað, sem Jesús var, og er hún sá hann, féll hún honum til fóta og sagði við hann: ,,Herra, ef þú hefðir verið hér, væri bróðir minn ekki dáinn.``

33 Þegar Jesús sá hana gráta og Gyðingana gráta, sem með henni komu, komst hann við í anda og varð hrærður mjög

34 og sagði: ,,Hvar hafið þér lagt hann?`` Þeir sögðu: ,,Herra, kom þú og sjá.``

35 Þá grét Jesús.

36 Gyðingar sögðu: ,,Sjá, hversu hann hefur elskað hann!``

37 En nokkrir þeirra sögðu: ,,Gat ekki sá maður, sem opnaði augu hins blinda, einnig varnað því, að þessi maður dæi?``

38 Jesús varð aftur hrærður mjög og fór til grafarinnar. Hún var hellir og steinn fyrir.

39 Jesús segir: ,,Takið steininn frá!`` Marta, systir hins dána, segir við hann: ,,Herra, það er komin nálykt af honum, það er komið á fjórða dag.``

40 Jesús segir við hana: ,,Sagði ég þér ekki: ,Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð Guðs`?``

41 Nú var steinninn tekinn frá. En Jesús hóf upp augu sín og mælti: ,,Faðir, ég þakka þér, að þú hefur bænheyrt mig.

Jóhannesarguðspjall 11:41 - Jesus Calls to Lazarus
Jesus Calls to Lazarus
42 Ég vissi að sönnu, að þú heyrir mig ávallt, en ég sagði þetta vegna mannfjöldans, sem stendur hér umhverfis, til þess að þeir trúi, að þú hafir sent mig.``

43 Að svo mæltu hrópaði hann hárri röddu: ,,Lasarus, kom út!``

44 Hinn dáni kom út vafinn líkblæjum á fótum og höndum og með sveitadúk bundinn um andlitið. Jesús segir við þá: ,,Leysið hann og látið hann fara.``

45 Margir Gyðingar, sem komnir voru til Maríu og sáu það, sem Jesús gjörði, tóku nú að trúa á hann.

46 En nokkrir þeirra fóru til farísea og sögðu þeim, hvað hann hafði gjört.

47 Æðstu prestarnir og farísearnir kölluðu þá saman ráðið og sögðu: ,,Hvað eigum vér að gjöra? Þessi maður gjörir mörg tákn.

48 Ef vér leyfum honum að halda svo áfram, munu allir trúa á hann, og þá koma Rómverjar og taka bæði helgidóm vorn og þjóð.``

49 En einn þeirra, Kaífas, sem það ár var æðsti prestur, sagði við þá: ,,Þér vitið ekkert

50 og hugsið ekkert um það, að yður er betra, að einn maður deyi fyrir lýðinn, en að öll þjóðin tortímist.``

51 Þetta sagði hann ekki af sjálfum sér, en þar sem hann var æðsti prestur það ár, gat hann spáð því, að Jesús mundi deyja fyrir þjóðina,

52 og ekki fyrir þjóðina eina, heldur og til að safna saman í eitt dreifðum börnum Guðs.

53 Upp frá þeim degi voru þeir ráðnir í að taka hann af lífi.

54 Jesús gekk því ekki lengur um meðal Gyðinga á almannafæri, heldur fór hann þaðan til staðar í grennd við eyðimörkina, í þorp sem heitir Efraím, og þar dvaldist hann með lærisveinum sínum.

55 Nú nálguðust páskar Gyðinga, og margir fóru úr sveitinni upp til Jerúsalem fyrir páskana til að hreinsa sig.

56 Menn leituðu að Jesú og sögðu sín á milli í helgidóminum: ,,Hvað haldið þér? Skyldi hann ekki koma til hátíðarinnar?``En æðstu prestar og farísear höfðu gefið út skipun um það, að ef nokkur vissi hvar hann væri, skyldi hann segja til, svo að þeir gætu tekið hann.

57 En æðstu prestar og farísear höfðu gefið út skipun um það, að ef nokkur vissi hvar hann væri, skyldi hann segja til, svo að þeir gætu tekið hann.

<< ← Prev Top Next → >>