Biblían, Matteusarguðspjall, Kafli 15. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10944&pid=42&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Matteusarguðspjall

Biblían

Matteusarguðspjall Markúsarguðspjall

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28

1 Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu:

2 ,,Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir taka ekki handlaugar, áður en þeir neyta matar.``

3 Hann svaraði þeim: ,,Hvers vegna brjótið þér sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar yðar?

4 Guð hefur sagt: ,Heiðra föður þinn og móður,` og: ,Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.`

5 En þér segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: ,Það sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er musterisfé,`

6 hann á ekki að heiðra föður sinn [eða móður]. Þér ógildið orð Guðs með erfikenning yðar.

7 Hræsnarar, sannspár var Jesaja um yður, er hann segir:

8 Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.

9 Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar.``

10 Og hann kallaði til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið og skiljið.

11 Ekki saurgar það manninn, sem inn fer í munninn, hitt saurgar manninn, sem út fer af munni.``

12 Þá komu lærisveinar hans og sögðu við hann: ,,Veistu, að farísearnir hneyksluðust, þegar þeir heyrðu orð þín?``

13 Hann svaraði: ,,Sérhver jurt, sem faðir minn himneskur hefur eigi gróðursett, mun upprætt verða.

14 Látið þá eiga sig! Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju.``

15 Þá sagði Pétur við hann: ,,Skýrðu fyrir oss líkinguna.``

16 Hann svaraði: ,,Eruð þér líka skilningslausir ennþá?

17 Skiljið þér ekki, að allt sem inn kemur í munninn, fer í magann og lendir síðan í safnþrónni?

18 En það sem út fer af munni, kemur frá hjartanu. Og slíkt saurgar manninn.

19 Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi.

20 Þetta er það, sem saurgar manninn. En að eta með óþvegnum höndum saurgar engan mann.``

21 Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar.

22 Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: ,,Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.``

23 En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: ,,Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.``

24 Hann mælti: ,,Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.``

25 Konan kom, laut honum og sagði: ,,Herra, hjálpa þú mér!``

26 Hann svaraði: ,,Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.``

27 Hún sagði: ,,Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.``

28 Þá mælti Jesús við hana: ,,Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.`` Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.

29 Þaðan fór Jesús og kom að Galíleuvatni. Og hann gekk upp á fjall og settist þar.

30 Menn komu til hans hópum saman og höfðu með sér halta menn og blinda, fatlaða, mállausa og marga aðra og lögðu þá fyrir fætur hans, og hann læknaði þá.

31 Fólkið undraðist, þegar það sá mállausa mæla, fatlaða heila, halta ganga og blinda sjá. Og þeir lofuðu Guð Ísraels.

32 Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði: ,,Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar. Ég vil ekki láta þá fara fastandi frá mér, þeir gætu örmagnast á leiðinni.``

33 Lærisveinarnir sögðu: ,,Hvar fáum vér nóg brauð til að metta allt þetta fólk hér í óbyggðum?``

34 Jesús spyr: ,,Hve mörg brauð hafið þér?`` Þeir svara: ,,Sjö, og fáeina smáfiska.``

35 Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina,

36 tók brauðin sjö og fiskana, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinunum, en lærisveinarnir fólkinu.

37 Allir neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur fullar.

38 En þeir, sem neytt höfðu, voru fjórar þúsundir karlmanna auk kvenna og barna.Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir.

39 Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir.

<< ← Prev Top Next → >>