Biblían, Amos, Kafli 7. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10886&pid=32&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Amos

Biblían

Jóel Amos Óbadía

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9

1 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt.

2 En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: ,,Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!``

3 Þá iðraði Drottin þessa. ,,Það skal ekki verða!`` sagði Drottinn.

4 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.

5 Þá sagði ég: ,,Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!``

6 Þá iðraði Drottin þessa. ,,Þetta skal ekki heldur verða!`` sagði Drottinn.

7 Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.

8 Og Drottinn sagði við mig: ,,Hvað sér þú, Amos?`` Ég svaraði: ,,Lóð.`` Þá sagði Drottinn: ,,Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann.

9 Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.``

10 Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: ,,Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans.

11 Því að svo hefir Amos sagt: ,Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.```

12 Síðan sagði Amasía við Amos: ,,Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar!

13 En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.``

14 Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: ,,Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber.

15 En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ,Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.`

16 Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ,Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.`Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.```

17 Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.```

<< ← Prev Top Next → >>