Biblían, Orðskviðirnir, Kafli 23. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10651&pid=22&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Orðskviðirnir

Biblían

Sálmarnir Orðskviðirnir Prédikarinn

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

1 Þegar þú situr til borðs með valdsherra, þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig,

2 og set þér hníf á barka, ef þú ert matmaður.

3 Lát þig ekki langa í kræsingar hans, því að þær eru svikul fæða.

4 Streist þú ekki við að verða ríkur, hættu að verja viti þínu til þess.

5 Hvort skulu augu þín hvarfla til auðsins, sem er svo stopull? Því að sannlega gjörir hann sér vængi eins og örn, sem flýgur til himins.

6 Et eigi brauð hjá nískum manni og lát þig ekki langa í kræsingar hans,

7 því að hann er eins og maður, sem reiknar með sjálfum sér. ,,Et og drekk!`` segir hann við þig, en hjarta hans er eigi með þér.

8 Bitanum, sem þú hefir etið, verður þú að æla upp aftur, og blíðmælum þínum hefir þú á glæ kastað.

9 Tala þú eigi fyrir eyrum heimskingjans, því að hann fyrirlítur hyggindi ræðu þinnar.

10 Fær þú eigi úr stað landamerki ekkjunnar og gakk þú eigi inn á akra munaðarleysingjanna,

11 því að lausnari þeirra er sterkur _ hann mun flytja mál þeirra gegn þér.

12 Snú þú hjarta þínu að umvöndun og eyrum þínum að vísdómsorðum.

13 Spara eigi aga við sveininn, því ekki deyr hann, þótt þú sláir hann með vendinum.

14 Þú slær hann að sönnu með vendinum, en þú frelsar líf hans frá Helju.

15 Son minn, þegar hjarta þitt verður viturt, þá gleðst ég líka í hjarta mínu,

16 og nýru mín fagna, er varir þínar mæla það sem rétt er.

17 Lát eigi hjarta þitt öfunda syndara, heldur ástunda guðsótta á degi hverjum,

18 því að vissulega er enn framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.

19 Heyr þú, son minn, og ver vitur og stýr hjarta þínu rétta leið.

20 Ver þú ekki með drykkjurútum, með þeim, sem hvoma í sig kjöt,

21 því að drykkjurútar og mathákar verða snauðir, og svefnmók klæðir í tötra.

22 Hlýð þú föður þínum, sem hefir getið þig, og fyrirlít ekki móður þína, þótt hún sé orðin gömul.

23 Kaup þú sannleika, og sel hann ekki, visku, aga og hyggindi.

24 Faðir réttláts manns fagnar, og sá sem gat vitran son, gleðst af honum.

25 Gleðjist faðir þinn og móðir þín og fagni hún, sem fæddi þig.

26 Son minn, gef mér hjarta þitt, og lát vegu mína vera þér geðfellda.

27 Því að skækja er djúp gröf og léttúðardrós þröngur pyttur.

28 Já, hún liggur í leyni eins og ræningi og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.

29 Hver æjar? hver veinar? hver á í deilum? hver kvartar? hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?

30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.

31 Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.

32 Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.

33 Augu þín munu sjá kynlega hluti, og hjarta þitt mun mæla fláræði.

34 Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi, já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.,,Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín!``

35 ,,Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín!``

<< ← Prev Top Next → >>