Biblían, Orðskviðirnir, Kafli 7. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10635&pid=22&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Orðskviðirnir

Biblían

Sálmarnir Orðskviðirnir Prédikarinn

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

1 Son minn, varðveit þú orð mín og geym þú hjá þér boðorð mín.

2 Varðveit þú boðorð mín, og þá munt þú lifa, og áminning mína eins og sjáaldur auga þíns.

3 Bind þau á fingur þína, skrifa þau á spjald hjarta þíns.

4 Seg við spekina: ,,Þú ert systir mín!`` og kallaðu skynsemina vinkonu,

5 svo að þær varðveiti þig fyrir léttúðarkonu, fyrir blíðmálugri konu sem annar á.

6 Út um gluggann á húsi mínu, út um grindurnar skimaði ég

7 og sá þar meðal sveinanna ungan og vitstola mann.

8 Hann gekk á strætinu nálægt horni einu og fetaði leiðina að húsi hennar,

9 í rökkrinu, að kveldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu.

10 Gekk þá kona í móti honum, búin sem portkona og undirförul í hjarta _

11 hávær er hún og óhemjuleg, fætur hennar tolla aldrei heima,

12 hún er ýmist á götunum eða á torgunum, og situr um menn hjá hverju horni _,

13 hún þrífur í hann og kyssir hann og segir við hann, ósvífin í bragði:

14 ,,Ég átti að greiða heillafórn, í dag hefi ég goldið heit mitt.

15 Fyrir því fór ég út til móts við þig, til þess að leita þín, og hefi nú fundið þig.

16 Ég hefi búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egypsku líni.

17 Myrru, alóe og kanel hefi ég stökkt á hvílu mína.

18 Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun, gamna okkur með blíðuhótum.

19 Því að maðurinn minn er ekki heima, hann er farinn í langferð.

20 Peningapyngjuna tók hann með sér, hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfylling.``

21 Hún tældi hann með sínum áköfu fortölum, ginnti hann með kjassmælum sínum.

22 Hann fer rakleiðis á eftir henni, eins og naut gengur fram á blóðvöllinn, og eins og hjörtur, sem anar í netið,

23 uns örin fer í gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna, og veit ekki, að líf hans er í veði.

24 Og nú, þér yngismenn, hlýðið á mig og gefið gaum að orðum munns míns.

25 Lát eigi hjarta þitt teygjast á vegu hennar, villst eigi inn á stigu hennar.

26 Því að margir eru þeir, sem hún hefir sært til ólífis, og mesti grúi allir þeir, sem hún hefir myrt.Hús hennar er helvegur, er liggur niður til heimkynna dauðans.

27 Hús hennar er helvegur, er liggur niður til heimkynna dauðans.

<< ← Prev Top Next → >>