Biblían, Jobsbók, Kafli 19. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10455&pid=20&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jobsbók

Biblían

Esterarbók Jobsbók Sálmarnir

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42

1 Þá svaraði Job og sagði:

2 Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?

3 Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.

4 Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá varðar það mig einan.

5 Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.

6 Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.

7 Sjá, ég kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar, ég kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.

8 Guð hefir girt fyrir veg minn, svo að ég kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.

9 Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.

10 Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að ég fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.

11 Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.

12 Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og setja herbúðir sínar kringum tjald mitt.

13 Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.

14 Skyldmenni mín láta ekki sjá sig, og kunningjar mínir hafa gleymt mér.

15 Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og ég er orðinn útlendingur í augum þeirra.

16 Kalli ég á þjón minn, svarar hann ekki, ég verð að sárbæna hann með munni mínum.

17 Andi minn er konu minni framandlegur, og bræður mínir forðast mig.

18 Jafnvel börnin fyrirlíta mig, standi ég upp, spotta þau mig.

19 Alla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir sem ég elskaði, hafa snúist á móti mér.

20 Bein mín límast við hörund mitt og hold, og ég hefi sloppið með tannholdið eitt.

21 Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.

22 Hví ofsækið þér mig eins og Guð og verðið eigi saddir á holdi mínu?

23 Ó að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók

24 með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!

25 Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.

26 Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af mér, mun ég líta Guð.

27 Ég mun líta hann mér til góðs, já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, _ hjartað brennur af þrá í brjósti mér!

28 Þegar þér segið: ,,Vér skulum ofsækja hann, rót ógæfunnar er hjá honum sjálfum að finna!``þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.

29 þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.

<< ← Prev Top Next → >>